29 hönnun — íslenskt vefstúdíó

Skilmálar

Síðast uppfært: 29. september 2026

1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um þjónustu 29 hönnun, kt. 221098-2699, Hófgerði 13, 200 Kópavogi, við hönnun, smíði og hýsingu vefsíðna. Með því að panta þjónustu samþykkir viðskiptavinur skilmálana.

2. Verð og virðisaukaskattur

Öll verð eru án virðisaukaskatts. 29 hönnun er ekki á virðisaukaskattsskrá eins og er og innheimtir því ekki virðisaukaskatt. Verði 29 hönnun skráð á virðisaukaskattsskrá bætist virðisaukaskattur við verð samkvæmt lögum. Það verður tilkynnt viðskiptavinum með minnst 30 daga fyrirvara.

3. Áskrift

Áskrift kostar 6.900 kr. á mánuði og innifelur hýsingu vefsíðunnar, .is lén, vöktun á uppitíma og lagfæringar á tæknilegum villum. Breytingar á efni, nýjar undirsíður og ný virkni eru ekki innifalin og eru unnin samkvæmt tilboði.

4. Binditími og uppsögn

Einföld vefsíða með fríri uppsetningu er með 12 mánaða binditíma sem hefst þegar vefurinn fer í loftið. Eftir binditímann er uppsagnarfrestur 1 mánuður. Aðrar áskriftir hafa 1 mánaðar uppsagnarfrest. Uppsögn skal berast skriflega á 29@29.is. Samningar sem gerðir voru fyrir 29. september 2026 halda upphaflegum binditíma sínum.

5. Greiðslur

Áskrift er innheimt mánaðarlega. Uppsetningargjöld eru innheimt eins og fram kemur í tilboði. Sé reikningur ógreiddur 30 dögum eftir eindaga er 29 hönnun heimilt að taka vefinn úr birtingu þar til greitt hefur verið.

6. Eignarhald

Viðskiptavinur er rétthafi lénsins og á allt efni sem hann leggur til, svo sem texta, myndir og merki. Hönnun og kóði vefsins eru eign 29 hönnun og fylgja áskriftinni á meðan hún er í gildi. Við uppsögn afhendir 29 hönnun viðskiptavini afrit af efni hans og aðstoðar við að flytja lénið í aðra hýsingu. Óski viðskiptavinur eftir að kaupa vefinn sjálfan er það gert samkvæmt sérstöku tilboði.

7. Ábyrgð

29 hönnun leggur sig fram um að vefir séu aðgengilegir og virki rétt en ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af truflunum hjá hýsingaraðilum, lénaskráningu eða öðrum þriðju aðilum. Ábyrgð 29 hönnun takmarkast við greiðslur viðskiptavinar síðustu 3 mánuði.

8. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness.