Persónuverndarstefna
Ábyrgðaraðili
29 hönnun, kt. 221098-2699, Hófgerði 13, 200 Kópavogi. Netfang 29@29.is, sími 785 2929.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Þegar þú sendir fyrirspurn: nafni, netfangi, símanúmeri, lýsingu á verkefni og léni ef þú gefur það upp. Þegar þú ert í viðskiptum við okkur: upplýsingum sem þarf vegna reikningagerðar.
Til hvers?
Til að svara fyrirspurn þinni, útbúa prufuútgáfu eða tilboð og efna samning við þig. Vinnslan byggir á því að hún sé nauðsynleg til að verða við beiðni þinni og efna samning, sbr. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Hve lengi?
Fyrirspurnum sem leiða ekki til viðskipta er eytt innan 12 mánaða. Bókhaldsgögn eru varðveitt í 7 ár eins og lög um bókhald krefjast.
Hverjir fá upplýsingarnar?
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Þjónustuaðilar sem hýsa vefinn og tölvupóstinn okkar geta unnið með gögnin fyrir okkar hönd.
Vafrakökur
Vefurinn notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur og safnar ekki upplýsingum í markaðstilgangi. Tungumálaval þitt er vistað í vafranum þínum.
Þín réttindi
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig og fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu okkur línu á 29@29.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
